Ef löggan stoppar mig og segir mér að koma inn í löggubílinn, get ég þá neitað því?

☆☆☆

Þú getur neitað að fara inn í lögreglubíl nema þú sért formlega handtekinn. Þú verður að gefa upp nafn og kennitölu ef þú er beðinn um það en þú þarft ekki að svara neinu um það sem lögreglan telur að þú hafir verið að gera. Þú þarf ekki að svara því hvaðan þú sért að koma eða hvert þú sért að fara, hvort þú sért á stolnum bíl eða hvort þú hafir drukkið áfengi.

Aftur á móti má lögreglan handtaka þig ef hún grunar þig um lögbrot og ef þú hafnar samvinnu (neitar t.d. að blása í áfengismæli) getur reynt á þvingunaraðgerðir. Þótt þú sért handtekinn máttu eftir sem áður neita að svara. Það er ekki þar með sagt að það sé endilega alltaf sterkasti leikurinn í stöðunni en þú þarft aldrei að svara neinu um sakarefnið.

Mynd: Pixabay: https://www.pexels.com/photo/vehicle-blue-emergency-light-turned-on-532001/