ChatGPT (sem á mínu heimili kallast kötturinn) er skemmtilegt mállíkan sem á einu augnabliki finnur svör við flóknum spurningum. En það er ekki nothæft til að komast að lögfræðilegum niðurstöðum. Það er alveg jafn gagnlegt að spyrja ólöglærðan vin með of mikið sjálfstraust eins og að spyrja köttinn.
Kötturinn skilur ekki hvernig lagasafnið er uppbyggt. Í lagasafninu eru kassar notaðir til að aðgreina „málsgreinar“ og stundum eru töluliðir innan málsgrreina. Sumar greinar hafa verið felldar út og öðrum bætt inn. Þetta ruglar köttinn. Hann kemur með kolvitlaus númer á lagagreinum og gerir ekki greinarmun á lagabálki og viðaukum, reglugerðarnúmeri í neðanmálsgreinum eða öðru sem lögin vísa í.
Kötturinn kann ekki að leita í dómasafninu til að skoða hvernig dómstólar túlka lög. Hann kann ekki að fletta upp í úrskurðum stjórnvalda. Hann kann ekki að bera saman lög og reglugerðir. Hann kann ekki túlkunarreglur og veit ekki hvaða ákvæði gilda þegar þau virðast rekast á.
Til að bæta gráu ofan á svart er kötturinn hannaður til þess að gera notandanum til geðs. Ef hann finnur ekki lög sem henta málstaðnum, þá bara skáldar upp lagaákvæði og laganúmer.
Það eru til gervigreindarlíkön sem eru sérhönnuð fyrir lögfræðileg álitaefni og reyndar er til vinsælt líkan sem er byggt á kettinum. Það er hægt að nota þau til að flýta fyrir sér en það er ekki hægt að taka því sem þau segja sem sannleika, maður þarf alltaf að fletta upp og skoða sjálfur.
Leikmenn sem eru ritfærir og kunna að fletta upp í lögum, dómum og úrskurðum, geta oft komist af án lögfræðiaðstoðar, t.d. í stjórnsýslumálum. Það er hið besta mál ef fólk getur spjarað sig án lögmanns. En kötturinn er ekki góður ráðgjafi í slíkum málum. Flettið upp sjálf, áður en þið setijið einhvern fróðleik úr kettinum í erindi til stjórnvalda eða tryggingafélaga. Það er bara of súrt að láta mál fara forgörðum með því að nota tæki sem er ekki hannað til þess að veita lögfræðiráðgjöf og skilur ekki hvað er í húfi.
Og í guðsbænum ekki reyna að reka dómsmál með köttinn sem ráðgjafa. Það er í alvöru ágæt ástæða fyrir því að fólk þarf að hafa að baki háskólanám til að fá lögmannsréttindi.
Mynd ID 374221164 ©Irene Hadras | Dreamstime.com