Það kostar ekkert að leita ráða
En getur orðið dýrt að sleppa því
rÉTTINDI GETA FARIÐ FORGÖRÐUM EF
ÞÚ BÍÐUR OF LENGI MEÐ AÐ LEITA rÁÐA
Stundum dregur fólk of lengi að leita sér aðstoðar af því að það telur sig ekki hafa efni á því. Lögfræðþjónusta er tímafrek og mál geta undið upp á sig og kostnaður þar með. Það getur þó orðið býsna dýrkeypt að gera ekkert, fara of seint af stað, eða gera hlutina af vankunnáttu. Réttindi geta fyrnst, minnið brugðist og því flóknari sem málin eru því meiri vinna fer í að greiða úr flækjunni.
Ef þú hefur réttinn þín megin áttu ekki að þurfa að sitja uppi með kostnað og jafnvel þótt það sé tvísýnt þýðir það ekki endilega að staðan sé vonlaus. Oft getur lögfræðingur bent á ódýrari leiðir sem þú vissir ekki af og stundum er mögulegt að fá fjárhagsaðstoð vegna lögfræðikostnaðar.
Með góðu skipulagi og yfirsýn er hægt að halda kostnaði í lágmarki miðað við eðli og umfang máls. Við leggjum áherslu á að gæta hagsmuna umbjóðenda okkar til hlítar, bæði hvað varðar réttarstöðu þeirra og málskostnað.
Kostnaður á aldrei að standa í vegi fyrir réttlætinuostnaður á aldrei að s
Tímagjald með virðisaukaskatti er kr. 39.355 (31.738 án vsk). Um þóknun vegna innheimtu á almennum fjárkröfum fer eftir gjaldskrá í reglugerð nr. 37/2009. Mál eru misflókin og oft útilokað að reikna kostnaðinn nákæmlega út fyrirfram. Ýmis kostnaður annar en tímagjald getur fallið til, t.d. getur þurft að afla matsgerðar, þýða skjöl úr öðrum tungumálum, greiða þóknun til stjórnsýslunefnda, auk þess sem þú getur þurft að greiða þinggjöld, kærumálskostnað o.fl.
Láttu kostnað ekki standa í vegi fyrir því að þú kannir réttarstöðu þína og athugaðu að hjá Hlít færðu 40 mínútna viðtal án endurgjalds. Ef þú ákveður að þiggja þjónustu okkar könnum við hvort þú átt rétt á gjafsókn eða gjafvörn, greiðslu úr réttaraðstoðartryggingu eða öðrum fjárhagsstuðningi. Við gerum þér grein fyrir öllum föstum kostnaði fyrirfram eða um leið og ljóst verður að sá kostnaður fellur til. Einnig setjum við fram skriflega áætlun um það sem þú getur gert til að draga úr kostnaði, upplýsum þig um stöðuna reglulega og skilum nákvæmum vinnuskýrslum. Stundum getum við gert fast tilboð í verkefnið og einnig kemur til greina að semja um árangurstengda þóknun.
Lausnin er til, við þurfum bara að finna hana,
Þú getur hjálpað til
Þegar þú leitar til Hlítar með mál sem kann að falla að þjónustu stofunnar getur þú óskað eftir fyrsta viðtali. Í því viðtali förum við yfir helstu málsatvik og ræðum næstu skref.
Fyrsta viðtal er að jafnaði greitt samkvæmt tímagjaldi. Ef við tökum málið að okkur fellur gjald fyrir fyrsta viðtal niður. Til að óska eftir viðtali er hægt að hringja í 699 7122 eða senda tölvupóst á eva@hlit.is. Viðtalið nýtist best ef þú hefur tekið saman helstu málsatvik, tímasetningar og mikilvægustu gögn og hefur skýra hugmynd um hvaða niðurstöðu þú vilt ná fram.
Áður en umfangsmikil vinna hefst er farið yfir áætlaðan kostnað, greiðslufyrirkomulag og næstu skref. Við leggjum áherslu á að halda kostnaði í eðlilegu samhengi við hagsmuni málsins. Oft getur umbjóðandinn hjálpað til við að halda kostnaði í lágmarki, einkum með því að afla þeirra gagna sem eru honum aðgengileg.
Gjafsókn og gjafvörn
Ef þú hefur lágar tekjur er líklegt að þú getir fengið gjafsókn (eða gjafvörn) til að standa straum af málskostnaði. Það getur einnig átt við ef mál þitt varðar almannahagsmuni. Í sumum tilvikum er gjafsókn lögbundin, t.d. í barnaverndarmálum.
☆☆☆
Heimilstryggingar
Ef þú ert með heimilistryggingu er mögulegt að réttaraðstoðartrygging sé innifalin. Ef þú ert ekki með slíka tryggingu nú þegar mælum við með því að þú bætir henni við pakkann. Það er aldrei að vita hvenær þú getur þurft á lögfræðiaðstoð að halda.
☆☆☆
Aðstoð í sakamálum
Fólk sem þarf að taka til varna í sakamáli á alltaf rétt á verjanda sér að kostnaðarlausu. Stundum eiga brotaþolar rétt á aðstoð réttargæslumanns til að setja fram bótakröfu, t.d. í kynferðisbrotamálum og vegna grófra ofbeldisbrota.
☆☆☆
Markmiðið er að ná hámarks árangri og meginreglan er sú að sá sem tapar dómsmáli ber kostnaðinn
Hjálpumst að og Höldum kostnaði í lágmarki